Hvað er úllendúllen?
Margir þekkja leikinn úllen dúllen doff. Leikskólabörn, grunnskólabörn og eldri börn allt upp í 100 ára hafa skemmta sér og hlegið við að leika hann í langan tíma.
En það sem margir vita ekki er að þetta er eldgamall leikur sem hefur varðveist í næstum tvö hundruð ár undarlegu vísuformi.
Vísan er svona:
Úllen dúllen doff / kikke lane koff / koffe lane bikke bane / úllen dúllen doff.
Leikur í hundrað ár
Leikurinn gengur út á að sá sem telur aðra krakka úr leiknum slær með krepptum hnefa á hnefa allra hinna sem taka þátt í leiknum um leið og hann fer með romsuna. Sá hnefi sem hann slær á síðast er lagður fyrir aftan bak. Svona er haldið áfram þangað til aðeins einn hnefi er eftir.
Börn á Íslandi hafa leikið sér með úllen dúllen doff í meira en hundrað ár. Þetta er ein vinsælasta úrtalningaromsa sem börn nota. Minnst er á leikinn í handriti sem talið er að Brynjólfur Jónsson frá Minna-Núpi (fæddur 1838 – dáinn 1914) hafi skrifað í kringum 1860. Í handritinu er minnst á romsuna í tengslum við svokallaðan Kóngsleik enda segir í gamalli gerð vísunnar: „úlin, dúlin, doff, fíngel, fængel, foff, foffúr alinn, merki, penni, e, be, bu, bú, kol, vaff, enn; dje, sloff, enn“. Sá sem seinast lendir „enn“ á verður kóngur…“
Talið er að vísuromsan sé komin frá Danmörku eða Noregi. Ekki er útilokað að þangað hafi hún eins og margt annað borist frá Þýskalandi.
Hvers vegna úllendúllen?
Úllendúllen er upplýsingasíða fyrir foreldra, afa og ömmur og alla aðra sem vilja njóta skemmtilegrar samveru með börnum sínum. Leitast er við að bjóða upp á fjölbreytta flóru afþreyingar.
www.ullendullen.is fór í loftið 10. ágúst árið 2015.
Svona varð Úllendúllen til
Úllendúllen er hugmynd sem var í mótun í nokkur ár og sátum við Jón Aðalsteinn og Baldvin Elíasson nokkrum sinnum langt fram á kvöld sumarið 2014 við skipulagningu hans. Þegar Hallgrímur Arnarson sagðist vorið 2015 kunna tæknilausnina fór heldur betur að styttast í að Úllendúllen liti dagsins ljós.
Þegar þetta var hafði hugmyndin ekkert heiti. Við sendum völdum hópi fólks lýsingu á vefnum og kom fjöldi nafna upp úr hattinum. Hjálmar Gíslason, stofnandi DataMarket, mælti með Úllendúllen og vísaði í leikinn Úllen Dúllen Doff sem börn og fullorðnir hafa leikið í um 200 ár.
Hvað er Úllendúllen?
Meginhugmyndin að Úllendúllen hefur haldist óbreytt frá upphafi. Þar söfnum við saman upplýsingum um það sem í boði er fyrir fjölskyldur, börn og afa og ömmur, frænkur og frændur og alla þá af mismunandi aldri sem vilja leika saman.
Á forsíðu miðilsins er hugmyndir að skemmtilegri afþreyingu og hugmyndir að hinu þessu að gera, umfjöllun um sýningar, sundlaugar, leikvelli, skemmtilega hjólastíga, jóganámskeið fyrir börn og viðtöl við áhugavert fólk og margt fleira skemmtilegt sem hægt er að gera í frítíma fjölskyldunnar, helst án þess að þátttakan kosti hálfan handlegg.
Í flipa í vinstra horni vefsíðunnar er hægt að skoða efnið sem fjallað hefur verið um eftir landssvæðum.
Viðburðadagatal Úllendúllen
Í flipanum er líka hægt að skoða viðburðadagatal. Mikil vinna liggur á bak við viðburðadagatal Úllendúllen og getur verið ansi erfitt að halda því við svo það virki almennilega.
Lesendur mega þess vegna alveg senda okkur póst á netfangið ullendullen@ullendullen.is eða skeyti á Facebook og láta okkur vita af skemmtilegum viðburðum. Ekki hræðast það að senda okkur eitt og annað. Við förum yfir allt sem okkur berst og svörum öllum.
Vikulegt fréttabréf
Þegar netverjar opna vefsíðuna í fyrsta sinn sprettur upp lítill gluggi þar sem viðkomandi er spurður hvort hann eða hún vilji gerast áskrifandi að fréttabréfi Úllendúllen. Fréttabréfið reynum við að gefa út vikulega. Útgáfan hefur verið tætingsleg í sumar en veturinn er efnilegur.
Áskrifendur að vikulega fréttabréfinu eru alveg hellingur og fá þeir það sent í tölvupósti á hverjum fimmtudegi.
Í fréttabréfinu er sagt frá því sem framundan er um helgina og í næstu viku ásamt því að rifja upp sitthvað áhugavert sem liðið er, svo sem pistla og viðtöl á Úllendúllen.
Það er gott að gerast áskrifandi að fréttabréfi Úllendúllen.
En hver erum þessi við?
Þetta erum við. Fréttablaðið tók viðtal við okkur skömmu eftir að Úllendúllen fór í loftið. Hér sjáið þið mynd af viðtalinu við okkur Jón Aðalstein og tæknitröllið Hallgrím.
Ýmislegt hefur breyst frá því viðtalið var tekið. Við Hallgrímur vinnum báðir mikið í vinnunum okkar á daginn og höfum því ekki haft eins mikinn tíma utan vinnunnar fyrir þetta frístundastarf okkar og við töldum okkur hafa þarna í ágústlok árið 2015. Þess vegna hefur fréttunum á forsíðunni fækkað og viðburðirnir ekki eins margir og við myndum vilja. En það mun allt breytast.
Það er draumur okkur að færa þetta allt til betri vegar og gera drauminn okkar um Úllendúllen að veruleika.
Þess vegna fögnum við öllum þeim sem vilja deila með okkur hugmyndum eða segja frá skemmtilegum viðburðum.
Viljið þið vita meira?
Endilega hafið samband við okkur á Facebook eða með því að senda skeyti á netfangið ullendullen@ullendullen.is. Sendið okkur línu.
Þið getið líka sent okkur póst í formið hér að neðan.
Við svörum öllum!
Góða skemmtun með Úllendúllen. Vonandi hjálpar hann að gera líf fjölskyldunnar skemmtilegra.