Börnum verða sagðar þjóðsögur í Viðey sunnudaginn 11. júlí kl. 13:30 í skemmtilegri náttúrugöngu þar sem sögukonan verður Björk Bjarnadóttir umhverfis- og þjóðfræðingur.
Spáð verður í jurtirnar, nöfn þeirra, athugað verður hvort það fylgi þeim einhver þjóðtrú, nytjar þeirra skoðaðar og fjallað um lækningamátt þeirra ásamt því sem fylgst verður með fuglalífi á eynni. Horft verður á hafið og sagðar þjóðsögur af marbendli, margýjum, hafmönnum, hafströmbum og öðrum verum sem búa í hafinu. Spáð verður í uppruna huldufólks og sögð saga sem tengist Magnúsi Stephensen konferenzráð og huldukonu einni. Fjölbreytt saga eyjunnar mun fléttast inn í gönguferðina.
Gangan er jafnt fyrir börn og fullorðna og ef fólk vill getur verið gaman að koma með jurta- og fuglabækur.
Siglt verður stundvíslega frá Skarfabakka kl. 13:15. Þeir sem vilja fá sér léttan hádegisverð í Viðeyjarstofu fyrir gönguna er bent á 12:15 ferjuna.
Gjald í ferjuna fram og til baka er 1.700 kr. fyrir fullorðna og 850 kr. fyrir börn 7 – 15 ára í fylgd fullorðinna. Börn 6 ára og yngri sigla frítt. Handhafar Menningarkorts Reykjavíkur fá 10% afslátt í Viðeyjarferjuna og af veitingum í Viðeyjarstofu. Handhafar Gestakortsins sigla frítt.