Hið árlega stórmót Taflfélags Reykjavíkur og Árbæjarsafns verður haldið í Árbæjarsafni sunnudaginn 15. ágúst og hefst það klukkan 14:00.
Þátttökugjald í Stórmótinu er 1.800 krónur fyrir 18 ára og eldri en ókeypis er fyrir yngri 17 ára og yngri. Þátttökugjaldið er líka aðgangseyrir á safnið.
Fram kemur í tilkynningu frá Árbæjarsafni að öllum er frjálst að skrá sig til leiks.
Verðlaun eru veitt fyrir efstu þrjú sætin. Verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í Stórmótinu eru 15.000 kr. í fyrsta sæti, 10.000 kr. í öðru sæti og 5.000 kr fyrir það þriðja. Taflmótið fer fram í húsi sem nefnist Kornhúsið.
Um svipað leyti munu Spilavinir stýra skemmtilegri spilastund fyrir fjölskyldur milli klukkan 13:00-16:00 í húsi sem heitir Lækjargata. Þar gefst fólki kostur á að læra ný spil undir styrki stjórn spilasérfræðinganna frá Spilavinum.
Ókeypis aðgangur fyrir börn, öryrkja og menningarkortshafa.
Árbæjarsafn er hluti af Borgarsögusafni: Eitt safn á fimm frábærum stöðum.