Umhugsunin um sögustund vekur upp tillhlökkun hjá þeim yngri og góðar minningar hjá þeim eldri . Það var fátt skemmtilegra í æsku en að fara í náttfötin, ná í uppáhalds bangsann sinn og hlusta á mömmu eða pabba lesa sögu fyrir svefninn.
Borgarbókasafnið í Sólheimum býður upp á svolítið skemmtilega sögustund á morgun, fimmtudaginn 8. október. Þeir sem koma þangað um kvöldmatarleytið geta nefnilega mætt í náttfötunum og tekið bangsa með og hlustað á skemmtilega sögu fyrir svefninn.
Sögustund á gömlu bókasafni
Sólheimasafn er fyrsta húsnæði Borgarbókasafns Reykjavíkur sem strax í upphafi var hannað og byggt með þarfir bókasafns í huga. Safnið opnaði árið 1948 að Hlíðarenda við Langholtsveg. Það fluttist fljótlega í Efstasund og þaðan í Sólheima í ársbyrjun 1963.
Þótt Sólheimasafn sé ekki stórt um sig, rétt rúmir 200 fermetrar, er þar góður safnkostur bæði fyrir börn og fullorðna.
Nú er bara að elda snemma og drífa sig á Sólheimasafn í sögustund og náttfatapartí annað kvöld.