Listasafn Reykjavíkur og Bandaríska sendiráðið bjóða upp á ævintýralegar listsmiðjur í Viðey í sumar fyrir börn á aldrinum 8-13 ára í tengslum við sýninguna Áfanga á verkum bandaríska listamannsins Richard Serra í Hafnarhúsinu.
Listamennirnir og fjallaleiðsögumennirnir Margrét H. Blöndal og Ósk Vilhjálmsdóttir sjá um smiðjurnar. Listsmiðjurnar eiga að verða fjórar. Þriðja smiðjan hefst í fyrramálið en fjórða og síðasta lota Listasmiðjunnar verður dagana 17. -21. ágúst næstkomandi. Listasmiðjurnar fara fram frá klukkan 8.30 til klukkan 16:00.
Litlir listamenn
Listsmiðjurnar standa í viku í senn þar sem áhersla er lögð á samband myndlistar við umhverfi sitt hvort sem það er náttúra eða manngert. Þátttakendur fá tækifæri til að njóta íslenskrar náttúru, teikna, mála, móta, skrá niður hugleiðingar sínar og tengja við aðra myndlistarmenn sem iðka ámóta aðferðir og vinnulag. Þeir heimsækja jafnframt sýningu Richard Serra Áfanga í Hafnarhúsinu og skoða samnefnt verk hans úti í Viðey.
Klæðið ykkur vel
Fatnaður sem þarf að hafa: Vatnsheldur hlífðarfatnaður (buxur og stakkur), undirföt, þunn langerma peysa eða skyrta, lopapeysa eða þykk flíspeysa, vettlingar, húfa og/eða buff.
Mikilvægt er að börnin séu vel nestuð; með morgun, hádegis- og síðdegisnesti.
Nánari upplýsingar er að finna á vefsíðu Listasmiðjunnar.
Skráning á: info@halendisferdir.is. Frekari upplýsingar fást í síma: 864-0412.
Innifalið í námskeiðsgjaldi:
Tveir myndlistarkennarar / leiðsögumenn.
Aðstaða í Viðey.
Allt efni fyrir myndlist og náttúruskoðun. Bátsferðir daglega.
[ad name=“POSTS“]