Norræna húsið: Baltnesk barnamenningarhátíð

Norræna húsið fagnar barnamenningu með því að kynna baltneska menningu á fjölbreyttan og skapandi hátt í samstarfi við einstaklinga með baltneskan bakgrunn.

Dagana 20. apríl – 14. júní verður haldin Baltnesk barnamenningarhátíð í Norræna húsinu.

Á fyrstu viku hátíðarinnar verður skólahópum boðið í klippimyndasmiðju sem er tileinkuð sögulegum byggingum gamla bæjarins í Vilníus, höfuðborg Litháens. Þar mun listakonan Jurgita Motiejunaite segja börnunum sögu bygginganna og aðstoða þau í að búa til sínar eigin klippimyndir. Klippimyndaverkin munu prýða sýningarvegg í anddyri/Atrium Norræna hússins til 14. júní – lokadags barnamenningarhátíðar.

Mikil breidd er í smiðjum fram undan í Norræna húsinu og má þar nefna hljóðfærasmiðju þar sem gestir kynnast Trejdeksnis, lettnesku ásláttarhljóðfæri og baltneska sagna- og myndasmiðju sem byggir á litháískri þjóðsögu um grassnákinn.

Bókasafn Norræna hússins býður upp á sögustundir á litháísku og lettnesku og bækur á eistnesku, litháísku og lettnesku eru aðgengilegar til lestrar á bókasafninu í samstarfi við Móðurmál er máttur. Bækur frá vinsæla lettneska bókaforlaginu Big and Small verða einnig dregnar fram.

Allt um barnamenningarhátíðina

Viðburðirnir á baltnesku barnamenningarhátíðinni

20. apríl – 14. júní 2021: Klippi klippi klipp! Myndlistarsýning á verkum barna: Skoða betur

8. maí 2021: Skröltstafur – vinnustofa í hljóðfæragerð: Skoða betur

9. maí 2021: Lettnesk þjóðlagatónlist í streymi: Skoða betur

22. maí 2021: Listræn brúðugerðarsmiðja: Skoða betur

29. maí 2021: Drottning grassnákanna: Vinnustofa byggð á litháenskri þjóðsögu: Skoða betur

Deilið þessu:

Skildu eftir svar

Vinsamlegast láttu rétt nafn og netfang fylgja með athugasemd