Barnaleiðsögn í Þjóðminjasafni

Það er svo margt áhugavert sem grípur fólk. Andlit eru þar á meðal enda muna flestir eftir athyglisverðum andlitum.

Á Mannamyndasýningunni í Myndasal Þjóðminjasafnsins eru ótal andlit sem gaman er að skoða. Elstu myndirnar eru um 400 ára gamlar teikningar og málverk. Nýjasta myndin er af útskriftarhóp þar sem allir útskriftarnemarnir þurftu að vera með grímu út af COVID-19.

Sunnudaginn 7. nóvember 2021 verður barnaleiðsögn í Myndasal Þjóðminjasafnisins klukkan 14:00.

Á þessum viðburði tekur safnkennari á móti börnum og fjölskyldum. Þar verður boðið upp á stutta kynningu á mannamyndunum fyrir börn.

Að því loknu verður hægt að hjálpast að við að búa til eigin skuggamynd og teikna brjóstmyndir (styttur) á póstkort.

Muna þetta: 7. 11. 2021 kl. 14:00 – 14:45. Barnaleiðsögn í Myndasal – Þjóðminjasafnið Suðurgötu

Aðgöngumiði í safnið gildir. Ókeypis fyrir handhafa árskorts og frítt fyrir börn yngri en 18 ára. Árskort kostar 2.000 kr. og gildir á allar sýningar og viðburði á Þjóðminjasafninu.

Meiri upplýsingar um viðburðinn á Facebook.

Deilið þessu:

Skildu eftir svar

Vinsamlegast láttu rétt nafn og netfang fylgja með athugasemd