Helgin er að ganga í garð enn á ný. Og það er nóg að gera. Þetta er helgi bæjarhátíðanna. Það er til dæmis ærin ástæða til að fara austur á land á Humar á Höfn á Hornafirði. Þar verður líka veðrið með skársta móti. Spáin er reyndar líka allt í lagi á bæjarhátíðinni sem er um helgina á Hólmavík. En þar skiptir sosum ekki máli hvort rignir eða sól skín í heiði. Þetta er auðvitað Hamingjudagar á Hólmavík og það er alveg sama hvernig viðrar þar, í bænum er alltaf nóg af glöðu fólki.
Það er feikinóg að gera um helgina fyrir hugmyndaríkar fjölskyldur.
Ef ekki er farið á bæjarhátíðir landshorna á milli þá er um að gera og fara á sýningu ungra listakvenna í Borgarbókasafni í Grófinni, ganga saman upp á næsta fjall, út í skóg eða fara í leik.
Í Heiðmörk er ratleikur í gangi fyrir alla sem vilja. Það er upplagt að kanna hanna: Ratleikurinn í Heiðmörk
Pálína Ósk Hraundal og fjölskylda hennar er mikið útivistarfólk. Hún fer stundum út í göngutúr með pönnukökudeig í flösku og steikir pönnsur á prímus: Pálína og pönnsurnar
Hér ræðir hún um bók sem hún skrifaði með fjalla- og útivistargarpinum Vilborgu Örnu Gissurardóttur. Þar er hellingur af útivistarhugmyndum: Alveg jafn gaman fyrir foreldra og börn að hlaupa í útileikjum
Góða skemmtun um helgina!
Laugardagur 30. júní
- Leikhópurinn Lotta er í Húsafelli og í góðu stuði á Hamingjudögum á Hólmavík: Hér er Lotta á flakki
- Ef þið viljið horfa á beina útsendingu frá HM í fótbolta þá getur öll fjölskyldan skroppið í Bíó Paradís. Ef börnin nenna ekki að horfa á keppnina þá geta þau skroppið í annan sal og horft á barnamynd. Fullorðnir geta líka gert það: HM-bíó fyrir börnin
- Gríðarleg hamingja á Hamingjudögum á Hólmavík: Eintóm sæla
- Hellingur í boði á Humarhátíðin á Höfn: Humar um sumar
- Leikfélag Kópavogs er að fara með leiksýningu til Litháen í ágúst. Þetta borgar sig ekki sjálft og þess vegna efnir félagið til Flóamarkaðar: Flóamarkaður Leikfélags Kópavogs
- Hvaladagurinn mikli og ókeypis á hvalasýninguna við Gömlu höfnina í Reykjavík: Hvaladagurinn
Sunnudagur 1. júlí
- Margir þekkja Barnadaginn í Viðey. Þetta er ferðalag á báti út í eyju þar sem boðið er upp á allskonar fyrir alla fjölskylduna: Barnadagur í Viðey
- Fornbílaklúbbur Íslands sýnir helling af gömlum eðalvögnum á Fornbíladeginum á Árbæjarsafni
- Eintóm hamingja fyrir vestan: Hamingjudagar á Hólmavík
- Hellingur af tónlistarfólki kemur fram á Humarhátíðinni á Höfn. Þar eru líka hoppukastalar og kassabílarallí – og er þá fátt nefnt: Humarhátíðin á Höfn