
- This event has passed.
UTmessan: Nýjasta tækni fyrir alla fjölskylduna
6. febrúar, 2016 - 10:00 - 17:00

Tæknisýningin- og ráðstefnan UTmessan er haldin um helgina í tónlistar- og ráðstefnuhúsinu Hörpu. Fyrri dagurinn er fyrir ráðstefnugesti sem borga sig inn. Á laugardaginn 6. febrúar er opið hús og ókeypis fyrir alla fjölskylduna frá klukkan 10:00-17:00.
Á UTmessunni á laugardag verður hægt að sjá ýmislegt splunkunýtt í tölvu- og tæknigeiranum, hlusta á örstutta fyrirlestra um hin ýmsu mál og taka þátt í getraunum og leikjum.
Sýningin er ætluð almenningi, konum og körlum, stelpum og strákum, ungum sem öldnum.
UTmessan er málið á laugardag.
Á meðal þess sem er í boði:
- Fylgjast með hönnunarkeppni véla- og iðnverkfræðinema
- Kynnast því hvernig smíði á kappakstursbíl fer fram
- Skema er með Minecraft vinnusmiðju þar sem hús Advania verður byggt í leiknum. Líka verður hægt að spila Minecraft með aðstoð Makey Makey örtölvu
- Kynning á forritunarumhverfum sem notuð eru á námskeiðum Skema eins og Alice, Kodu Game Lab, Unity 3D og GameSalad
- Tæta í sundur tölvur og setja saman með sys/trum, félagi kvenna í tölvunarfræðideild HR og Promennt
- Foreldrum gefnar hugmyndir að tæknifikti sem þau geta gert með börnum sínum
- 5 góð ráð fyrir öruggari notkun á tölvupósti og interneti
Hafið þið áhuga? Hér er öll dagskráin á UTmessunni.
[ad name=“POSTS“]