
- This event has passed.
Þjóðminjasafnið býður upp á ókeypis leiðsögn
6. september, 2015 - 14:00 - 15:00
[ad name=“POSTS“]
Þjóðminjasafnið er komið í haustgírinn og ætlar að hefja barnaleiðsagnir um safnið á nýjan leik. Fyrsta leiðsögn haustsins verður á sunnudag klukkan 14:00 og verður framvegis á fyrsta sunnudegi hvers mánaðar yfir veturinn.
Leiðsögnin er ókeypis fyrir öll börn.
Leiðsögn um landnámið
Fram kemur á Facebook-síðu Þjóðminjasafnsins að á sunnudag muni safnkennari fjalla um landnám og baðstofulíf á 19. öld. Sverð, skartgripir og beinagrindur landnámsmanna, baðstofa, askur og strokkur eru meðal þeirra gripa sem verða skoðaðir. Í lok leiðsagnar munu börnin skoða og fá að leika sér að gömlum leikföngum.
Nú er bara að drífa sig á Þjóðminjasafnið á sunnudag.
[ad name=“POSTS“]