
- This event has passed.
Ævintýraóperan Baldursbrá sýnd aftur!
20. maí, 2016 - 22. maí, 2016

Vegna fjölda áskorana er ævintýraóperan Baldursbrá eftir Gunnstein Ólafsson og Böðvar Guðmundsson sýnd á þremur aukasýningum í Norðurljósasal Hörpu 20.–22. maí.
Óperan hlaut mikið lof þegar hún var frumsýnd í ágúst á síðasta ári og fékk hún rífandi góða dóma innanlands og erlendis. Hún var m.a. tilnefnd til íslensku tónlistarverðlaunanna árið 2014.
Börnin í ellefu hlutverkum
Í aðalhlutverkum eru fjórir fullorðnir söngvarar og ellefu börn. Leikstjóri er Sveinn Einarsson en hljómsveitarstjóri er Gunnsteinn Ólafsson.
Miðasala er í Hörpu: www.harpa.is. Sýningarnar verða klukkan 19:00 föstudagskvöldið 20. maí, klukkan 14:00 laugardaginn 21. maí og sunnudaginn 22. maí.
Miðinn á sýninguna kostar 2.500 krónur.
[ad name=“POSTS“]