
- This event has passed.
Sinfóníuhljómsveit með Barnastund
10. október, 2015 - 11:30 - 12:00
Sinfóníuhljómsveit Íslands býður upp á barnastund. Í Barnastundinni má heyra ljúfa fyrsta þáttinn úr Eine kleine Nachtmusik eftir Mozart ásamt úrvali léttra og skemmtilegra laga. Tónlistin og lengd Barnastundarinnar er sérstaklega sniðin að þeim hópi sem er of ungur, til að sitja heila tónleika í Litla tónsprotanum.
Kynnir í Barnastundinni er Hjördís Ástráðsdóttir, fræðslustjóri Sinfóníunnar, en Sigrún Eðvaldsdóttir konsertmeistari leiðir Sinfóníuhljómsveitina af sinni alkunnu snilld. Sérstakur gestur verður Maxímús Músíkús.
Barnastundin er hálftíma löng og fer fram í Hörpuhorni á 2. hæð, framan við Eldborg.
Gott er að taka með sér púða til að sitja á.
Aðgangur ókeypis
Details
- Date:
- 10. október, 2015
- Time:
-
11:30 - 12:00
- Event Category:
- Ókeypis viðburðir
- Event Tags:
- Barnastund, Harpa, Höfuðborgarsvæðið, Sinfóníuhljómsveit Íslands
Venue
- Ráðstefnu- og tónlistarhúsið Harpa
-
Austurbakki 2
Reykjavík, Reykjavík 101 Iceland + Google Map
[ad name=“POSTS“]