Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Ritlistarkennsla fyrir 9-12 ára: Börnin læra að semja sögur

15. júní, 2015 - 09:30 - 15:30

Borgarbókasafnið býður upp á ritlistarkennslu fyrir börn á aldrinum 9-12 ára. Námskeiðið fer fram í öllum söfnum dagana 15.-19. júní og er ýmist fyrir eða eftir hádegið. Frí er á 17. júní. Skráning hefst í hverju safni 18. maí og námskeiðið er þátttakendum að kostnaðarlausu.

Markmið námskeiðsins er fyrst og fremst að örva sköpunarkraft barnanna og fá þau til að nýta hann í að búa til sögur. Í Árbæ verður smiðjan með öðru móti því þátttakendur fá leiðsögn í því að breyta sögu í leikrit að auki og fá þeir að setja upp leikritið í lokin.

Fjöldi rithöfunda hefur komið að ritsmiðjunum í gegnum árin og í sumar eru það rithöfundarnir Gunnar Helgason (Gerðubergi og Sólheimum), Ævar Þór Benediktsson (Kringlunni og Grófinni), Hilmar Örn Óskarsson (Spönginni) og Ólöf Sverrisdóttir (Árbæ) sem sjá um smiðjurnar.

Nánari upplýsingar á söfnunum sjálfum. Ekkert þátttökugjald.

Upplýsingar um leiðbeinendur og tíma:

Borgarbókasafnið Menningarhús Árbæ
Hraunbæ 119, 110 Reykjavík
sími 411 6250
Kl. 9.30 -12.30   Ólöf Sverrisdóttir (leikritsmiðja)

Borgarbókasafnið Menningarhús Gerðubergi
Gerðubergi 3-5, 111 Reykjavík
sími 411 6170
Kl.13.00-15.30   Gunnar Helgason

Borgarbókasafnið Menningarhús Grófinni
Tryggvagötu 15, 101 Reykjavík
sími 411 6100
Kl. 13.00-15.30   Ævar Þór Benediktsson

Borgarbókasafnið Menningarhús Kringlunni
við Listabraut, 103 Reykjavík
sími: 580 6200
Kl. 9.30 -12.00   Ævar Þór Benediktsson

Borgarbókasafnið Menningarhús Sólheimum
Sólheimum 27, 104 Reykjavík
sími 411 6160
Kl. 9.30 – 12.00  Gunnar Helgason

Borgarbókasafnið Menningarhús Spönginni
112 Reykjavík
sími 411 6230
Kl. 10.00 -12.30  Hilmar Örn Óskarsson

Details

Date:
15. júní, 2015
Time:
09:30 - 15:30
Event Category:
Event Tags:
, , , , , ,

Organizer

Borgarbókasafn Reykjavíkur
Phone:
411 6100
Email:
borgarbokasafn@borgarbokasafn.is
Website:
http://www.borgarbokasafn.is/

Venue

Borgarbókasafn, Grófinni
Tryggvagata
Reykjavík, Höfuðborgarsvæðið 101 Iceland
+ Google Map
Phone:
411 6100
Website:
http://www.borgarbokasafn.is/

[ad name=“POSTS“]