
- This event has passed.
Reykhóladagar á Reykhólum: Pabbi í súmóbleyju
23. júlí, 2015 - 20:00 - 26. júlí, 2015 - 12:00

Viljiði fara í ferðalag en eyða sem minnstu á áfangastað? Þá er nú tilvalið að skella sér á byggðarhátíðina Reykhóladaga sem standa frá fimmtudegi og alveg fram á sunnudag. Margt er í boði fyrir káta krakka og fullorðna. Sumir viðburðirnir kosta reyndar smávegis.
Pabbi í súmóbleyju!
Hellingur er í boði. Á meðal þess er Bíó í báta og hlunninda, teymt undir börnunum, jógakennsla, súpa sem íbúðar að Reykhólum bjóða upp á, spurningakeppnin, brenna í Bjarkalundi, dráttavélasýning og dráttavélakeppni og kassabílarallí. Þá verður Karnivalsstemning með hoppuköstulum, andlitsmálningu fyrir börn á öllum aldri, súmóglímubúningar sem gaman verður að sjá pabba troða sér í, zumba fitness, þaraþrautir og margt fleira.
Á laugardaginn verður haldið Reykhóladagahlaup. Fjórar vegalengdir eru í boði og örugglega leyfilegt að senda pabbana styttri vegalengdir í súmóglímubúningnum.
Ball með Spöðunum og Sóldögg
Rúsínurnar í pylsuendunum eru svo tvær gamalkunnar og vinsælar hljómsveitir sem koma fram. Það eru Spaðarnir góðkunnu (Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur og tónlistarmaður og kompaní) og Sóldögg með Begga í farabroddi.
Þið getið skoðað nánari upplýsingar um Reykhóladagana hér og séð hvað kostar á viðburðina sem eru í boði. Reykhóladagar eru líka með fína Facebook-síðu.
Það kostar ekkert að kíkja við á Reykhólum en miði á böll og viðburði kosta frá 500 -2.900 kr.
[ad name=“POSTS“]