
- This event has passed.
Ráðstefnan Íslenskar æskulýðsrannsóknir 2015
20. nóvember, 2015 - 10:00 - 16:30

Ráðstefnan Íslenskar æskulýðsrannsóknir er kannski frekar fyrir fullorðna en börn. En ráðstefnan og niðurstöðurnar sem þar eru kynntar geta gagnast báðum.
Ráðstefnan er haldin í Stakkahlíð (gamla Kennaraháskólanum) og stendur hún frá klukkan 10 til 16:30. Mikilvægt er að skrá sig.
Þátttökugjad er 2.500 krónur. Innifalið í gjaldinu eru kaffiveitingar. Hádegisverður er á kostnað þátttakenda – Nemendur og fyrirlesarar greiða ekki þáttökugjald en þurfa að skrá sig
Dagskráin
Fyrri hluti
Aðaldagskrá fyrirlesara er svona frá klukkan 10-13:
- Að miðla eða móta: Um rætur æskulýðsstarfs og upphaf æskulýðsrannsókna
Dr. Þórólfur Þórlindsson prófessor emeritus – Háskóli Íslands.
- Hinar ýmsu bylgjur jafnréttisviðhorfa. Um jafnréttisviðhorf unglinga á Íslandi
Andrea S Hjálmsdóttir lektor – Háskólinn á Akureyri
- Nauðsyn heildstæðrar nálgunar í málefnum æskulýðs
Dr. Gestur Guðmundsson prófessor – Rannsóknarstofa í bernsku og æskulýðsfræðum – Háskóli Íslands
- Það sem fjölmiðlarnir fjalla ekki um
Margrét Lilja Guðmundsdóttir sérfræðingur – Rannsóknir og greining Háskólanum í Reykjavík
Viðurkenningar – Íslensku æskulýðsverðlaunin 2015
Matarhlé kl 13 -14
Seinni hluti
Frá klukkan 14-16:30 eru nokkrar málstofur: Þær eru
- Fagmennska og áhrif þátttakenda
- Margbreytileikinn
- Frístundaheimili
- Námsumhverfi og líðan
Að ráðstefnunni standa Námsbraut í tómstunda- og félagsmálafræðum við Menntavísindasvið Háskóla Íslands, Félagsvísindadeild Háskólans á Akureyri, Rannsóknarstofa í bernsku- og æskulýðsfræðum, Rannsóknarstofa í tómstundafræði, Rannsókn og greining við Háskólann í Reykjavík, Félag fagfólks í frítímaþjónustu og fleiri.
[ad name=“POSTS“]