
- This event has passed.
Óskar og Sóley í fjórða Krakkamengi
14. febrúar, 2016 - 10:30 - 12:00

Tónlistarfólkið Óskar Guðjónsson saxófónleikari og Sóley Stefánsdóttir eru gestaleiðbeinendur á tónlistarnámskeiðinu Krakkamengi sunnudaginn 14. febrúar.
Krakkamengi er tilrauna- og tónlistarnámskeið Benedikts Hermanns Hermannssonar í Mengi við Óðinsgötu 2. Tónlistarnámskeiðið er ókeypis og opið öllum krökkum á milli 4-6 ára, líka fyrir fullorðið fyldarfólk barnanna. Kennari og liðbeinendur gefa líka vinnu sína. Hafið í huga að aðeins um 50 krakkar komast á hvert námskeið og því er um að gera og hafa hraðar hendur.
Fyrirkomulagið: Börnin koma með foreldrum/forráðamönnum sínum í Mengi á sunnudagsmorgni klukkan 10:30 og vinna í vinnustofu í um klukkustund. Að því loknu fer fram flutningur á afrakstri vinnustofunnar.
Viltu vita meira um Krakkamengi í Mengi? Úllendúllen ræddi við Benedikt Hermann um Krakkamengi.
Nánari upplýsingar eru á Facebook-síðu Krakkamengis.
[ad name=“POSTS“]