
- This event has passed.
Norræna húsið: Jóladagatalið opnað
1. desember, 2015 - 12:35 - 24. desember, 2015 - 13:00

Hefð er fyrir því í Norræna húsinu að opna lifandi jóladagatal í hádeginu á hverjum degi í desember fram að jólum. Jóladagatalið er eins og þessi með súkkulaðinu í og verður nýr gluggi opnaður á hverjum degi. Jóladagatalið gerði Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir.
Hægt er að fylgjast með því í beinni útsendingu á vef Norræna hússins þegar dagatalið er opnað.
Jóladagatalið er haldið í Svarta Boxinu á neðri hæð Norræna hússins.
Fjöldi atriða í jóladagatalinu
Gestir Norræna hússins geta átt von á hverju sem er þegar gluggar dagatalsins eru opnaðir, upplestri, dansi og alls kyns skemmtiatriðum.
Dagskráin hefst klukkan 12:34. Þá er bjöllu hringt og sagt hvað í boði er.
Gestum er boðið upp á óáfengt jólaglögg og piparkökur.
Fjöldi listarmanna og atriða er í jóladagatali Norræna hússins.
Þeir eru:
Teitur Magnússon, Hið Íslenska gítartríó, Lóa Hjálmtýsdóttir, Jófríður Ákadóttir, Lára Rúnars, Árstíðir P12:P27, Dalí, Jazztríó Andrésar Thors, Bollywood dans, „This conversation is missing a point“, Ævar vísindamaður, Úlfur Úlfur, Snjólaug Lúðvíksdóttir, Kór Kársnesskóla, Ísgerður Gunnarsdóttir, Jóga og eplaskífur, Ragnar Helgi Ólafsson, Sigríður Eyrún and Karl Olgeirsson, Kriðpleir, Milkywhale, Skuggamyndir frá Býsans, Leitin að tilgangi unglingsáranna, Edda Björg and Stefán Magnússon.
[ad name=“POSTS“]