
- This event has passed.
Nexus: Alþjóðlegi borðspiladagurinn
30. apríl, 2016 - 12:00 - 18:00

Alþjóðlega borðspiladeginum er fagnað í versluninni Nexus laugardaginn 30. apríl. Dagskráin er pakkfull frá klukkan 12-18.
Boðið verður upp á kennslu og kynningu á fjölda borðspila, kennsla verður í því hvernig mála á Warhammer spilasett, efnt verður til spurningaspilakeppni í Game of Thrones og gefnar vörur tengdar þáttunum í verðlaun.
Það verður líka svokölluð Codenames liðakeppni. Codenames er vinsælasta spil síðasta árs og efst á lista Boardgame Geek yfir partý spil. Það eru þrír saman í liði og það er mjög einfalt að spila, einnig fyrir byrjendur.
Þetta verður spennandi!
[ad name=“POSTS“]