Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Náttfatapartí á bókasafni

10. september, 2015 - 19:00 - 20:00

Sólheimasafn býður uppá sögustund og náttfatapartí og bangsi er velkominn líka.

Borgarbókasafnið í Sólheimum  býður upp á svolítið skemmtilega sögustund fimmtudaginn 10. september næstkomandi. Þeir sem koma þangað um kvöldmatarleytið geta nefnilega mætt í náttfötunum og tekið bangsa með og hlustað á skemmtilega sögu fyrir svefninn.

Sólheimasafn er fyrsta húsnæði Borgarbókasafns Reykjavíkur sem strax í upphafi var hannað og byggt með þarfir bókasafns í huga. Safnið opnaði árið  1948 að Hlíðarenda við Langholtsveg. Það fluttist fljótlega í Efstasund og þaðan í Sólheima í ársbyrjun 1963.

Þótt Sólheimasafn sé ekki stórt um sig, rétt rúmir 200 fermetrar, er þar góður safnkostur bæði fyrir börn og fullorðna.

Nú er bara að elda snemma og drífa sig á Sólheimasafn í náttfatapartí.

Details

Date:
10. september, 2015
Time:
19:00 - 20:00
Event Category:
Event Tags:
, , ,

Venue

Sólheimasafn
Sólheimum 27
Reykjavík, Reykjavík 104 Iceland
+ Google Map

[ad name=“POSTS“]