
- This event has passed.
Mosfellsbær: Búist við mörgum á brennu
9. janúar, 2016
Árleg þrettándabrenna verður laugardaginn 9. janúar. Brennan, sem verður við Leirvoginn, er risastór viðburður í Mosfellsbæ og mæta þúsundir gesta í bæinn.
Brennan er stærsti viðburður í bænum á ári hverju þar sem þúsundir gesta leggja leið sína í Mosfellsbæ. Dagskráin verður vegleg að þessu sinni en fram koma Stormsveitin með Bigga Haralds. Skólahljómsveit Mosfellsbæjar ásamt Grýlu, Leppalúða og þeirra hyski.
Blysför leggur af stað frá miðbæjartorgi kl. 18:00 og haldið að brennunni sem verður á sama stað og árlega, neðan Holtahverfis við Leirvoginn þar sem áramótabrennan var haldin.
Nánar má lesa um brennuna á vef Mosfellsbæjar.
[ad name=“POSTS“]