Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Mosfellsbær: Bæjarhátíð í túninu heima

28. ágúst, 2015 - 30. ágúst, 2015

Bæjarhátíð Mosfellsbæjar, Í túninu heima, er haldin síðustu helgina í ágúst ár hvert. Árið 2015 er hún dagana 28.til 30.ágúst. Þetta er sannkölluð fjölskylduhátíð sem stendur í þrjá daga og geta allir fundið eitthvað við sitt hæfi.

Bærinn er klæddur í hátíðarbúning með skreytingum þar sem hvert hverfi hefur sinn lit. Fjölbreyttir menningarviðburðir eru í boði, tónleikar, myndlistasýningar, útimarkaðir og íþróttaviðburðir. Hátíðin hefst formlega á föstudagskvöldi með skrúðgöngu varðeld og brekkusöng í Álafosskvos.
Á hátíðinni fara flestir viðburðir fram utandyra og má þar helst nefna: Markað í Álafosskvos og í Mosfellsdal, Sýning á flugvélum og fornbílum hjá Flugklúbbi Mosfellsbæjar við Tungubakka, barnadagskrá á miðbæjartorgi og tívolí. Heilsutengdir viðburðir eru jafnan við íþróttamiðstöðina að Varmá.

Hápunktur hátíðarinnar er á laugardagskvöld þegar stórtónleikar fara fram á Miðbæjartorgi og stíga ávallt landsþekktar hljómsveitir ásamt heimamönnum á svið. Tónleikarnir enda á flugeldasýningu og fyrir þá sem ekki eru búnir að fá nóg er dansleikur í íþróttamiðstöðinni að Varmá fram á rauða nótt.  Þema hátíðarinnar er íslenska lopapeysan.

Nýjustu fréttirnar er hægt að lesa á Facebook-síðu hátíðarinnar Í túninu heima.

Details

Start:
28. ágúst, 2015
End:
30. ágúst, 2015
Event Category:
Event Tags:
, , , ,

Organizer

Unnamed Organizer
Website:
https://www.facebook.com/ituninuheima

Venue

Mosfellsbær
Þverholt 1
Mosfellsbær, Mosfellsbær 270 Iceland
+ Google Map
Website:
http://www.mosfellsbaer.is/mannlif/afthreying/i-tuninu-heima/

[ad name=“POSTS“]