
- This event has passed.
Menningarnótt: Jólasveinarnir í sumarskapi
22. ágúst, 2015 - 11:00 - 22:00
Það hefur rignt í sumar og júlí var kaldasti mánuður frá upphafi mælinga. Vegna slæmrar tíðar þetta árið rugluðust íslensku jólasveinarnir örlítið í ríminu og komu fyrr til byggða en vanalega ásamt foreldrum sínum, þeim Grýlu og Leppalúða.
Þessi ófrýnilega en skemmtilega fjölskylda hefur leitað skjóls í versluninni fóu við Laugaveg 2 í Reykjavík. Þar verða þau til sýnis á Menningarnótt ásamt jólakettinum.
Í versluninni stendur yfir sýning á verkum með íslenskum húsum. Listamennirnir á bak við myndirnar eru þau Patra Tawatpol, Kamile og Andrew Murray. Hver og einn hefur sinn einstaka stíl, upplifun og túlkun á íslenskum húsum. Bjarni Þór Kristjánsson er listamaðurinn sem gerir jólasveinana og Grýlu og Leppalúða en hann hefur áralanga reynslu í útskurði á misjöfnum efnivið.
Details
- Date:
- 22. ágúst, 2015
- Time:
-
11:00 - 22:00
- Event Category:
- Ókeypis viðburðir
- Event Tags:
- Höfuðborgarsvæðið, Listir, Menning, Samkomur
Venue
- Verslunin fóa
-
Laugavegi 2
Reykjavík, Reykjavík 101 Iceland + Google Map
[ad name=“POSTS“]