Það er líf og fjör á Menningarnótt og boðið upp á fjölbreytta skemmtun. Írski nýsirkushópurinn Fidget Feet ætlar að vinna nýja sýningu með íslenska danshópnum bíbí & blaka. Hóparnir tveir ætla að vinna nýtt verk fyrir allra yngstu áhorfendurna sem blandað verður saman nýsirkus (e. aerial dance) og samtímadansi.
Á Menningarnótt er gestum boðið í heimsókn í Tjarnarbíó á opna æfingu þar sem að dansarar verksins sýna smá brot og kynna vinnuaðferðir sínar. Öllum verður boðið upp á svið og fá gestir að kanna dans- og flughæfileika sína.
Tímasetning: 13:00 og 14:00