
- This event has passed.
Menningarhúsið Spönginni: Víkingafjör í vetrarfríi
27. febrúar, 2016 - 13:00 - 16:00
Heimsdagur barna er í dag. Borgarbókasafn býður af því tilefni upp á margskonar skemmtun í anda víkinga.
Heimsdagur barna, sem er orðinn fastur liður í menningarlífi borgarinnar og hefur verið haldinn í Gerðubergi frá 2005. Í fyrra var sú breyting að smiðjur voru einnig í Borgarbókasafninu Sólheimum, Kringlunni og Spönginni. Í ár er dagurinn haldinn þegar grunnskólanemendur í Reykjavík eru í Vetrarfríi og ættu allir aldurshópar að finna eitthvað spennandi við sitt hæfi.
Dagskráin í Spönginni
Skuggaleg víkingaævintýri
Í skuggaleikhúsinu bregðum við á leik og spinnum víkingaævintýri með töfrum ljóss og skugga. Velkomið að taka með sér
vasaljós enda eins gott að vera við öllu búin.Smiðjustjórar: Sólveig Guðmundsóttir og Cécilie Parcillié
Völva í spáhelli
Galdrakonur og galdrar léku stór hlutverk í lífi víkinganna. Komdu ef þú þorir og leyfðu völvunni að sjá inn í þína framtíð! Hjátrú og spádómar voru víkinganna ær og kýr og fór enginn í bardaga nema fá álit völvunnar fyrst. Völva: Ólöf Sverrisdóttir
Víkingavinabandasmiðja
„Vin sínum skal maðr vinur vera“ Víkingarnir voru ekki eingöngu í bardögum og ránsferðum heldur var traustur vinskapur mikils metinn meðal þeirra. Komdu og lærðu að flétta víkingavinabönd í fornum anda.
Smiðjustjóri: Ellen Ýr Jónsdóttir
Details
- Date:
- 27. febrúar, 2016
- Time:
-
13:00 - 16:00
- Event Category:
- Ókeypis viðburðir
- Event Tags:
- Borgarbókasafn, Heimsdagur barna, Höfuðborgarsvæðið, Reykjavík, Vetrarfrí
- Website:
- http://borgarbokasafn.is/is/content/heimsdagur-barna-%C7%80-vetrarfr%C3%AD-%C3%AD-sp%C3%B6nginni
Venue
- Borgarbókasafnið Spönginni
-
Spönginni 41
112 Reykjavík, + Google Map
[ad name=“POSTS“]