
- This event has passed.
Biophilia: Stjörnu-Sævar leiðbeinir 10-12 ára
19. mars, 2016 - 13:30 - 15:00

Í tengslum við sýninguna Aftur í sandkassann – Listir og róttækar kennsluaðferðir í Listasafni Reykjavíkur í Hafnarhúsi fer fram vinnustofa fyrir fjölskyldur í samstarfi við Biophilia-menntaverkefnið.
Vinnustofan er ókeypis og ætluð börnum á aldrinum 10-12 ára.
Jarðfræðingurinn og stjörnuáhugamaðurinn Sævar Helgi Bragason mun fjalla um þyngdarkraft og feril jarðar um sólkerfið, möndulhalla jarðar og áhrif hans á árstíðirnar.
Hvað er Biophilia?
Tónlistarkonan og tónlistarkennarinn Ásta Björg Björgvinsdóttir skoðar hvernig tvær eða fleiri sjálfstæðar laglínur eru fléttaðar saman í lag og mynda heild. Saman tengja þau þetta tvennt, vinna tilraunir og skoða þessi fyrirbæri með aðstoð spjaldtölvuappa Biophilia verkefnis Bjarkar Guðmundsdóttur.
Biophilia menntaverkefnið er samstarfsverkefni mennta- og menningarmálaráðuneytis, norrænu ráðuherranefndarinnar, Reykjavíkurborgar, Háskóla Íslands og Bjarkar Guðmundsdóttur.
Athugið að fjöldi þátttakenda er takmarkaður. Skráning og nánari upplýsingar veitir fræðsludeild í síma 411 6400 eða á fraedsludeild@reykjavik.is
Nánari upplýsingar á vefsíðu Hafnarhússins.
Details
- Date:
- 19. mars, 2016
- Time:
-
13:30 - 15:00
- Event Category:
- Ókeypis viðburðir
- Event Tags:
- Biophilia, Hafnarhús, Höfuðborgarsvæðið, Listasafn, Listasafn Reykjavíkur, Reykjavík
- Website:
- http://listasafnreykjavikur.is/vi%C3%B0burdir/biophilia-solstice-smidja-fyrir-10-12-ara
Venue
- Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhús
-
Tryggvagata 17
Reykjavík, Reykjavík 101 Iceland + Google Map
[ad name=“POSTS“]