
- This event has passed.
Krakkar fá ókeypis á geimsýningu
8. nóvember, 2015 - 15:00 - 17:00

Dagskrá verður sunnudaginn 8. nóvember fyrir börn og fullorðna í tengslum við sýninguna Geimþrá í Ásmundarsafni. Á sýningunni hefur kúlunni á húsinu verið breytt í stjörnuver. Þar er hægt að horfa upp í geiminn og sjá hin ýmsu fyrirbæri alheimsins.
Dagskráin hefst kl. 15. Aðgangseyrir á sýninguna er kr. 1.400, ókeypis fyrir gesti 18 ára og yngri og Menningarkortshafa.
Eðlisfræðingur segir frá geimnum
Umsjón með stjörnuverinu hefur Frímann Kjerúlf Björnsson, myndlistarmaður og eðlisfræðingur, og segir hann gestum frá fyrirbærunum í geimnum.
Sýningin Geimþrá stendur nú yfir í Ásmundarsafni. Þar eiga verk þau Ásmundur Sveinsson (1893–1982), Gerður Helgadóttur (1928–1975), Jón Gunnar Árnason (1931–1989) og Sigurjón Ólafsson (1908–1982).
Horfðu til himins
Leiðarstef sýningarinnar er sameiginlegur áhugi þeirra á himingeimnum og vísindum tengdum honum. Ásmundur hreifst fyrst og fremst af framförum geimvísindanna, á meðan Sigurjón var áhugamaður um stjörnufræði. Gerður Helgadóttir kannaði dulspekilegar víddir geimsins en Jón Gunnar skoðaði hann frá sjónarhorni vísindaskáldskapar. Verkin á sýningunni eru flest frá 6. og 7. áratugnum og vísa til tækniframfara þess tíma, í framtíðarsýn geimvísinda, en einnig til vísindaskáldskapar sem þá var orðin þekkt grein innan bókmennta og kvikmynda.
Details
- Date:
- 8. nóvember, 2015
- Time:
-
15:00 - 17:00
- Event Category:
- Greiddir viðburðir
- Event Tags:
- Ásmundarsafn, Höfuðborgarsvæðið, Listasafn Reykjavíkur, Listasýning, Reykjavík
Venue
- Ásmundarsafn
-
Sigtúni
Reykjavík, Reykjavík 105 Iceland + Google Map - Website:
- http://listasafnreykjavikur.is/asmundarsafn
[ad name=“POSTS“]