
- This event has passed.
Krakkamengi: Halldór og Úlfur Eldjárn kenna krökkunum
10. apríl, 2016 - 10:30 - 12:00

Tónlistarsmiðjan Krakkamengi hefst að nýju í dag.
Krakkamengi hófst skömmu eftir áramótin síðustu og var á hverjum sunnudegi í sjö vikur. Ekki var búið að skipuleggja fleiri tónlistarsmiðjur. Krakkamengi mun standa yfir í nokkrar vikur – ekki er þó búið að ákveða hversu lengi.
Í Krakkamengi 10. apríl munu þeir Halldór Eldjárn og Úlfur Eldjárn verða í hlutverki gestaleiðbeinenda. Benni Hemm Hemm, sem og gestaleiðbeinendur hans, gefa vinnu sína og er aðgangur ókeypis og opinn öllum börnum á aldrinum 6 til 10 ára sem og foreldrum þeira á meðan húsrúm leyfir en gert er ráð fyrir fullri þátttöku foreldra í smiðjunni.
Nánari upplýsingar á Facebook-síðu 8. í Krakkamengi.
[ad name=“POSTS“]