
- This event has passed.
Krakkamengi í þriðja sinn
7. febrúar, 2016 - 10:30 - 12:00

Krakkamengi er tilrauna- og tónlistarnámskeið Benedikts Hermanns Hermannssonar í Mengi við Óðinsgötu 2. Tónlistarnámskeiðið er ókeypis og opið öllum krökkum á milli 4-6 ára, líka fyrir fullorðið fylgdarfólk barnanna. Kennari og liðbeinendur gefa líka vinnu sína. Hafið í huga að aðeins um 50 krakkar komast á hvert námskeið og því er um að gera og hafa hraðar hendur.
Gestaleiðbeinendur sunnudaginn 7. febrúar eru þau Magga Stína og Finnbogi Pétursson. Í síðustu viku voru leiðbeinendurnir tónlistarkonan Kira Kira og Futuregrapher. Á fyrsta námskeiðinu var píanóleikarinn Víkingur Heiðar annar leiðbeinenda.
Fyrirkomulagið: Börnin koma með foreldrum/forráðamönnum sínum í Mengi á sunnudagsmorgni klukkan 10:30 og vinna í vinnustofu í um klukkustund. Að því loknu fer fram flutningur á afrakstri vinnustofunnar.
Viltu vita meira um Krakkamengi í Mengi? Úllendúllen ræddi við Benedikt Hermann um Krakkamengi.
Nánari upplýsingar eru á Facebook-síðu Krakkamengis.
[ad name=“POSTS“]