
- This event has passed.
Kópavogur: Ljósmyndanámskeið í Gerðarsafni
25. febrúar, 2016 - 13:00 - 26. febrúar, 2016 - 17:00

Ljósmyndanámskeið fyrir 12 ára krakka og eldri verður haldið vetrarfrísdagana 25.-26. febrúar í Gerðarsafni í Kópavogi.
Á námskeiðinu mun ljósmyndarinn Ingvar Högni Ragnarsson kenna grunnatriði í ljósmyndun.
Farið verður yfir tæknileg atriði og mismunandi aðferðir í ljósmyndun.
Skráið börnin á ljósmyndanámskeið
Ingvar Högni mun ræða inntak verka sinna og aðferðir í sýningunni Uppsprettur sem stendur yfir í Gerðarsafni og mun hópurinn gera eigin ljósmyndaverk á sína myndavél eða síma.
Námskeiðið er ætlað 12 ára og eldri og fer fram 25. febrúar kl. 13-17 og 26. febrúar kl. 13-16. Takmarkaður fjöldi kemst að og er tekið við skráningu á netfangið gerdarsafn@kopavogur.is
[ad name=“POSTS“]