
- This event has passed.
Borgarbókasafn við Tryggvagötu: Kóder kennir krökkum að fikta
9. júlí, 2016 - 14:00 - 16:00

Leiðbeinendur frá samtökunum Kóder bóða upp á tækni- og tilraunaverkstæði í Menningarhúsinu Grófinni í Reykjavík laugardaginn 9. júlí á milli klukkan 14-16. Fólk þekkir kannski menningarhúsið betur sem Borgarbókasafnið við Tryggvagötuna í Reykjavík.
Á námskeiðinu munu leiðbeinendur Kóder aðstoða og kenna krökkum á forritun legókubbaleiksins Minecraft, á litlu tölvuna Raspberry Pi, einfalda forritunarmálið Scratch og ýmislegt fleira.
Fram kemur á vef Borgarbókasafnsins að ekki er um eiginlegt námskeið að ræða heldur tækifæri fyrir krakka og foreldra þeirra til að kynnast, fikta og læra saman um spennandi tækni og forrit.
Verkstæðið í bókasafninu er fyrir 6-14 ára krakka og foreldra þeirra. Aðgangur er ókeypis.
[ad name=“POSTS“]