
- This event has passed.
Kjarvalsstaðir: Hrollvekjandi ritsmiðja fyrir börn
23. október, 2015 - 13:00 - 27. október, 2015 - 16:00

Listasafn Reykjavíkur býður upp á ritsmiðju fyrir 8-12 ára börn sem stendur yfir í fimm daga í Hugmyndasmiðjunni á Kjarvalsstöðum, frá föstudegi 23. október til þriðjudags 27. október frá kl. 13-16. Þátttaka er ókeypis en þar sem fjöldi barna er takmarkaður er nauðsynlegt að skrá sig fyrirfram á netfangið: fraedsludeild@reykjavik.is
Ókeypis fyrir fullorðna með börn
Viðburðurinn er haldinn í tengslum við vetrarfrí í grunnskólum í höfuðborginni yfir helgina.
Fullorðnir í fylgd með börnum fá frítt inn.
Fjölbreyttar sýningar eru í Hafnarhúsi, á Kjarvalsstöðum og Ásmundarsafni og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi frá föstudag og fram á þriðjudag.
Draugasögur í björtu
Á námskeiðinu á Kjarvalsstöðum verða lesnar draugasögur, skoðað hvernig sögurnar eru uppbyggðar og þátttakendur aðstoðaðir við að skrifa sína eigin hrollvekju. Námskeiðinu lýkur á uppskeruhátíð þar sem fjölskyldum höfundanna er boðið að koma og hlýða á afraksturinn.
Markús Már Efraím hefur umsjón með ritsmiðjunni. Hann ritstýrði hrollvekjusafninu Eitthvað illt á leiðinni sem sem kom út í vor en höfundar bókarinnar eru börn á aldrinum átta til tíu ára.
Ef þið viljið læra að semja krassandi draugasögu þá eru Kjarvalsstaðir málið!
[ad name=“POSTS“]