
- This event has passed.
Kjarvalsstaðir: Fjölskylduleiðsögn um sýninguna Einskismannsland
30. september, 2018 - 11:00 - 12:00
[ad name=“POSTS“]
Sunnudaginn 30. september verður leiðsögn fyrir alla fjölskylduna um sýninguna Einskismannsland í Listasafni Reykjavíkur á Kjarvalsstöðum. Þetta er jafnframt síðasti dagur sýningarinnar.
Í fjölskylduleiðsögninni fá börnin skemmtileg verkefni og tækifæri til að tjá upplifun sína á margvíslegan hátt.
Eftir leiðsögnina gefst fjölskyldum kostur á að leika sér saman í hugmyndasmiðju safnsins í hálendisverkefni í anda sýningarinnar sem allur aldur getur tekið þátt í.
Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir börn í fylgd með fullorðnum. Frítt fyrir handhafa Árskorts Listasafns Reykjavíkur og Menningarkorts Reykjavíkur.
Ítarlegri upplýsingar: Listasafn Reykjavíkur – Kjarvalsstaðir
[ad name=“POSTS“]