
- This event has passed.
Kex Hostel: Sauðfé rúið inn að skinni
9. apríl, 2016 - 14:00 - 16:00

Kexland og Landsamband Sauðfjárbænda kynna með stolti rúningskeppnina Gullklippurnar 2016. Keppnin fer fram laugardaginn 9. apríl klukkan 14:00.
Þar munu fremstu keppendur landsins og sauðfé úr Borgarfirði mætast í portinu á bak við Kex Hostel. Keppt verður um Gullklippurnar.
Keppendur eru af báðum kynjum og mun sá sem framkvæmir sneggstu og bestu rúninguna standa uppi sem sigurvegari.
Á meðan keppni stendur yfir verður boðið uppá tvíreykt sauðakjöt og harmonikkuundirleik og fleira sem glatt getur fjölskyldufólk á öllum aldri.
Fram kemur í tilkynningu frá Kex Hostel að sauðféð kemur í fylgd dýralæknis sem sér um að allt fari kindúðlega fram.
[ad name=“POSTS“]