
- This event has passed.
Kex Hostel: Börn búa til nýjan söngleik
20. mars, 2016 - 13:00 - 14:00

Spunaleikararnir Sigga Eyrún og Pálmi Freyr Hauksson ásamt tónlistarsnillingnum og spunaleikaranum Karli Olgeirssyni bjóða öllum krökkum að taka þátt í að búa til glænýjan söngleik á Heimilislegum sunnudegi á Kex Hostel.
Söngleikurinn verður frumsýndur á staðnum og verður aðeins þessi eina sýning!
Söngleikjagerðin fer fram á Heimilislegum sunnudögum á Kex Hostel sem hefur fest sig í sessi.
Heimilislegir sunnudagar hefjast klukkan 13:00.
Foreldrar eru hvattir til þess að taka þátt.
Kreisí sunnudagar!
Sigga Eyrún og Karl Olgeirsson sömdu og fluttu saman m.a. lagið Kreisí í undankeppni Evróvisjón á RÚV á dögunum.
Allir velkomnir – Enginn aðgangseyrir.
Nánar er hægt að fylgjast með Heimilislegum sunnudögum á Facebook.
[ad name=“POSTS“]