
- This event has passed.
Jólamarkaður við Elliðavatn
19. desember, 2015 - 11:00 - 20. desember, 2015 - 16:00
Jólamarkaður Skógræktarfélags Reykjavíkur er opinn allar aðventuhelgar frá klukkan 11:00 til 16:00.
Markaðurinn er í miðri Heiðmörk við Elliðavatn og það er erfitt að finna jólalegri stemningu.
Auk Handverks-og Hönnunarmarkaðs er á hverjum helgardegi klukkan 14:00 barnastund í Rjóðrinu þar sem barnabókahöfundar koma og lesa við lítinn varðeld. Jólasveinninn lítur líka við.
Rithöfundar og tónlistarmenn kíkja við
Á kaffistofunni koma í heimsókn rithöfundar, harmonikkuleikarar og tónlistarfólk.
Alla daga er :
Barnastund í Rjóðrinu kl 14:00
Jólasveinar á vappi frá 13:30-15:30
Harmonikkuleikur frá 14-15
Spákonur í kjallaranum hjá kaffistofunni
Laugardagur 19. desember
Lóa Hjálmtýsdóttir rithöfundur á kaffistofu kl 13
Barnastund í Rjóðrinu kl 14
Sunnudagur 20. desember
Mótettukór á hlaði kl 12
Kristín Svava rithöfundur á kaffistofu kl 13
Ævar Vísindamaður með Barnastund kl. 14
Snorri Helgason á kaffistofu kl 15
[ad name=“POSTS“]