
- This event has passed.
Heimsdagur barna og víkingar í Kringlusafni
27. febrúar, 2016 - 13:00 - 16:00

Heimsdagur barna er í dag. Borgarbókasafn býður af því tilefni upp á margskonar skemmtun í anda víkinga.
Heimsdagur barna, sem er orðinn fastur liður í menningarlífi borgarinnar og hefur verið haldinn í Gerðubergi frá 2005. Í fyrra var sú breyting að smiðjur voru einnig í Borgarbókasafninu Sólheimum, Kringlunni og Spönginni. Í ár er dagurinn haldinn þegar grunnskólanemendur í Reykjavík eru í Vetrarfríi og ættu allir aldurshópar að finna eitthvað spennandi við sitt hæfi.
Dagskráin í Kringlunni
Sverðasmiðja
Enginn fer í víking óvopnaður. Í Kringlusafni verður hægt að útbúa sér sitt eigið sverð og hjálm áður en til orrustu er haldið!
Á vit víkinga
Hví ekki að skella sér í hlutverk víkinga til forna og lifa sig inn í ævintýri þess tíma. Ljósmyndari verður á staðnum í Kringlusafni og tekur hann myndir af litlum víkingum.
Sleipnir fer á flug!
Óðinn reið um himingeima á hinum áttfætta hesti Sleipni. Borgarbókasafnið segir ekki víst hvort Óðinn komi í heimsókn á bókasafnið. En hesturinn hans Sleipnir mun ekki láta sig vanta í fjörið í Kringlunni og taka börn með sér á hugarflug. Smiðjan er allan daginn en Sleipnir sjálfur verður á svæðinu klukkan 15:00.
[ad name=“POSTS“]