
- This event has passed.
Hafnarfjörður: Ókeypis leiðsögn á listsýningu í Hafnarborg
19. september, 2015

Hafnarborg í Hafnarfirði býður upp á fjölskylduleiðangur og listasmiðju í tengslum við sýninguna Heimurinn án okkar. Leiðangurinn hefst klukkan 14. Fjölskylduleiðangurinn er opin öllum en listasmiðjan er hugsuð fyrir börn á aldrinum 5 – 10 ára.
Á Facebook-síðu Hafnarborgar er sýningunni lýst svo: Í fjölskylduleiðangrinum og í listasmiðjunni verða ræddar hugmyndir tengdar stjörnufræði, líffræði og öðrum vísindum en einnig heimspekilegar vangaveltur um lífið og alheiminn, takmörkun mannsins, tilvist hans og mörk hins sýnilega og hins óþekkta. Hversu persónuleg og einstaklingsbundin heimssýn okkar getur verið, hve mikið við byggjum á þekkingu og staðreyndum og hvenær tekur ímyndunarafl okkar og tilfinning við?
Listamennirnir sem eiga verk á sýningunni eru: Björg Þorsteinsdóttir (1940), Brynhildur Þorgeirsdóttir (1955), Finnur Jónsson (1892-1993), Gerður Helgadóttir (1928-1975), Marta María Jónsdóttir (1974), Ragnar Már Nikulásson (1985), Steina (1940) og Vilhjálmur Þorberg Bergsson (1937). Sýningarstjórar eru: Aðalheiður Valgeirsdóttir og Aldís Arnardóttir.
Details
- Date:
- 19. september, 2015
- Event Category:
- Ókeypis viðburðir
- Event Tags:
- Hafnarfjörður, List, Menning
Venue
- Hafnarborg
-
Strandgata 34
Hafnarfjörður, Hafnarfjörður 220 Iceland + Google Map
[ad name=“POSTS“]