
- This event has passed.
Fjör í vetrarfríinu: Gufunesbær – Grafarvogur
23. október, 2015 - 00:00

Hvað ætlið þið að gera í vetrarfríinu í grunnskólanum? Margir klóra sér í höfðinu. En engar áhyggjur. Reykjavíkurborg hefur brett upp ermar og býður upp á heljarinnar mikla afþreyingu fyrir fjölskylduna.
Þetta er í boði fyrir fjölskylduna í Grafarvogi í vetrarfríinu.
Föstudagurinn 23. október
Kl. 10:00-12:00 Klifurturninn opinn og frítt inn.
Kl. 10:00-14:00 Útieldun og kakó fyrir gesti og gangandi.
Kl. 11:30 Skráning í frisbí-golfmót, hægt að fá diska á staðnum.
Kl. 12:00 Frisbí-golfmót.
Kl. 13:00-15:00 Bingó í Hlöðunni, ágóði rennur til SOS-barnaþorpa.
Mánudagurinn 26. október
Kl. 14:00-16:00 Sundlaugarpartý fyrir fjölskylduna í Grafarvogslaug, frítt inn.
Þriðjudagurinn 27. október
Kl. 11:00-14:00 Smiðjur fyrir fjölskyldur í Hlöðunni og við Gufunesbæ; keilubrautir, klifur, spil o.fl.
[ad name=“POSTS“]