
- This event has passed.
Fjör í vetrarfríinu: Ársel – Árbær og Grafarholt
23. október, 2015 - 08:00 - 27. október, 2015 - 17:00

Hvað ætlið þið að gera í vetrarfríinu í grunnskólanum? Margir klóra sér í höfðinu. En engar áhyggjur. Reykjavíkurborg hefur brett upp ermar og býður upp á heljarinnar mikla afþreyingu fyrir fjölskylduna alla virku daga vetrarfrísins.
Þetta er í boði fyrir fjölskylduna í Árseli, Árbæ og Grafarholti.
Föstudagur 23. október
Kl. 11:00 Fjölskylduratleikur í Árseli, Rofabæ 30.
Kl. 12:00 Fjölskyldugrill
Kl. 12:30-13:30 Fjölskylduleikir, pógó og human fusball
Kl. 20:00 Undankeppni fyrir hönnunarkeppnina Stíl í félagsmiðstöðinni Holti.
Mánudagur 26. október
Kl. 14:00-16:00 Fjölskyldan saman í leikjum og fjöri í Árbæjarlaug, frítt inn
Kl. 19:00-21:00 Bíósund fyrir fjölskylduna í Árbæjarlaug, frítt inn.
Þriðjudagur 27. október
Kl. 14:00-16:00 Bingó í frístundaheimilinu Stjörnulandi og Fókus.
[ad name=“POSTS“]