
- This event has passed.
Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn 25 ára: Komdu í afmæli
18. júlí, 2015

Fjölskyldu- og húsdýragarðinum fagnar 25 ára afmæli í dag. Af því tilefni sendir Bylgjan beint út frá garðinum frá kl. 12:20 til 16:00.
Þetta er reyndar tvöfalt afmæli því Söngvaborg heldur upp á 15 ára afmæli sitt í garðinum og því verður boðið upp á krakkatónleika!
Mikið húllumhæ verður í garðinum. Emmessís ætlar að gefa gestum ís, Ölgerðin og „Joe and the Juice“ gefa gestum svalandi drykki og Ali ætlar að grilla góðgæti ofan í mannskapinn. Söngvaborg, Sigga Beinteins og María Björk o.fl. munu skemmta gestum auk atriða úr Iceland got Talent Þá verða leiktæki opin og dýrin í góðum gír og þeim gefið samkvæmt dagskrá.
Veittur verður 40% afsláttur af dagpössum og aðgangseyri á afmælisdaginn.
Nánar um afmælið á vef Fjölskyldu- og húsdýragarðsins.
[ad name=“POSTS“]