
- This event has passed.
Ferðafélag barnanna: Skoðum stærsta foss Íslands
6. september, 2015 - 11:00 - 16:00
Það er gaman að skoða fossa. Ferðafélag barnanna hefur skipulagt fimm klukkustunda ókeypis ferð inn í Hvalfjörð sunnudaginn 6. september til að skoða hæsta fossinn á Íslandi. Þetta er auðvitað Glymur.
Í ferðalýsingu ferðafélagsins segir að ferðin sé fyrir þá sem þori! Glymur er í afar þröngu og djúpu gili í Hvalfirði. Þeir sem ætli að sjá hann þurfi að klöngrast í gegnum helli, fóta sig á planka yfir straumharða á, sigrast á snarbröttum brekkum og standa á þverhníptum klettabrúnum.
Ekki þarf að panta í ferðina. Þið þurfið bara að mæta á bílum við skrifstofu Ferðafélags Íslands í Mörkinni 6 klukkan 11 og aka þaðan með ferðafélögunum inn í Hvalfjörð.
Nánari upplýsingar á vefsíðu Ferðafélags barnanna.
[ad name=“POSTS“]