
- This event has passed.
Borgarbókasafn: Það er fjör að fara í búning
21. nóvember, 2015 - 14:00 - 15:30

Hvað gerist þegar Múmínpabbi mætir tígrisdýrinu? Borgarbókasafnið í Kringlunni býður gestum og gangandi í búningaleik laugardaginn 21. nóvember. Allskonar búningar eru í boði. Þú mátt líka koma í þínum eigin búningi.
Boðið er upp á myndatöku á staðnum eins og á Ljósmyndasafni Reykjavíkur á Menningarnótt en myndin hér að ofan var einmitt tekin þar. Þú getur því tekið myndina með þér heim og hengt hana á ísskápinn.
Allir eru velkomnir á Borgarbókasafnið í Kringlunni.
[ad name=“POSTS“]