Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Bóka- og bíóhátíð barnanna í Hafnarfirði

14. febrúar, 2016 - 21. febrúar, 2016

Bóka- og bíó­hátíð barn­anna í Hafnar­f­irði stendur yfir vikuna 15.-21. febrúar 2016. Þetta er í fyrsta skipti sem hátíðin er haldin. Áhersla á þessari menningarhátíð er á bækur og kvikmyndir. Frítt er á alla viðburði.

Hér er öll dagskrá Menningarhátíðar barnanna:

MÁNUDAGUR 15. FEBRÚAR

Bæjarbíó: Bíósýning kl. 9.30 og 10.30 fyrir 4-5 ára börn í leikskólum Hafnarfjarðar
Bókasafn Hafnarfjarðar: Opið kl. 10-19 fyrir öll verkefni sem kynnt eru hér framar

ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR

Bæjarbíó: Bíósýning kl. 9.30 og 10.30 (OPNUNARHÁTÍÐ) fyrir 4-5 ára börn í leikskólum Hafnarfjarðar
Bókasafn Hafnarfjarðar:

Ratleikur frá kl. 14-19 (bækur og bíó) en safnið opið frá kl. 10-19 fyrir öll verkefni sem kynnt eru hér framar

MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR

Bæjarbíó: Bíósýning kl. 9.30 og 10.30 (OPNUNARHÁTÍÐ) fyrir 4-5 ára börn í leikskólum Hafnarfjarðar.

Bókasafn Hafnarfjarðar: Bókabingó kl. 17 en er opið frá kl. 10-19 fyrir öll verkefni sem kynnt eru hér framar

FIMMTUDAGUR 18. FEBRÚAR

Bæjarbíó: Bíósýning kl. 9.30 og 10.30 fyrir 4-5 ára börn í leikskólum Hafnarfjarðar.

Bókasafn Hafnarfjarðar: Heimanámsaðstoðin Heilahristingur kl. 15-17 en safnið er opið frá kl. 10-19 fyrir öll verkefni sem eru kynnt hér framar

FÖSTUDAGUR 19. FEBRÚAR

Bókasafn Hafnarfjarðar: Opið kl. 11-17 fyrir öll verkefni sem eru kynnt hér framar.

Grunnskólarnir: Dagskrá í hverjum grunnskóla bæjarins fyrir nemendur í öllum árgöngum. Áherslan verður á bókakynningar, upplestur úr bókum og kvikmyndir sem gerðar hafa verið eftir bókum og henta börnum á ólíkum aldri. Dagskrána verður að finna á heimasíðum skólanna

LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR

Fjörður: Bóka- og býttimarkaður barna kl. 13-15. Opinn markaður þar sem börn á grunnskólaaldri geta komið með „gömlu“ bækurnar sínar og selt á 200 kr. eða býtt á bókum (á jöfnu) svo komið sé heim með „nýjar“ í staðinn. Mæting á söluborð er kl. 12.45 en þeim verður dreift um alla 1. hæð Fjarðar.

Bæjarbíó: Bíósýningar í boði fyrir alla fjölskylduna

Kl. 13 Lína langsokkur
Kl. 15 Benjamín dúfa
Kl. 20 Englar alheimsins.

Bókasafn Hafnarfjarðar: Opið kl. 11-15 fyrir öll verkefni sem eru kynnt hér framar.

Byggðasafn Hafnarfjarðar: Opið kl. 11-17 á sýningu um sögu kvikmyndahúsanna í Hafnarfirði.

SUNNUDAGUR 21. FEBRÚAR

Hafnarborg: Smiðja kl. 14 um endurnýtingu bóka. Unnið verður með texta, samklipp og origami. Í byrjun smiðjunnar verður boðin leiðsögn um sýningu Ragnhildar Jóhannsdóttur í Sverrissal Hafnarborgar, efniviður Ragnhildar eru fundnar, notaðar bækur sem í meðförum hennar umbreytast og öðlast þar með aðra tilvist. Starfsfólk Hafnarborgar leiðir smiðjuna.
Bæjarbíó: Bíósýningar í boði fyrir alla fjölskylduna

Kl. 13 Múmínálfarnir
Kl. 15 Hrafnar, Sóleyjar og Myrra
Kl. 20 Djöflaeyjan

Byggðasafn Hafnarfjarðar: Opið kl. 11-17 á sýningu um sögu kvikmyndahúsanna í Hafnarfirði.

Menningarhátíðin er haldin í nánu samstarfi við Hafnarfjarðarbæjar við Bókasafn Hafnarfjarðar, grunnskóla, leikskóla, Bæjarbíó í Hafnarfirði og fleiri.

Sjáið hvað fleira er að gera í Hafnarfirði!

Lestrarsendiherrar bæjarins

Á opnunarhátíð vikunnar verða Lestrarsendiherrar Hafnarfjarðar 2016 kynntir, einstaklingar sem koma úr röðum flottra hafnfirskra fyrirmynda.

Lestrarsendiherrar Hafnarfjarðar verða kynntir til sögunnar á sérstakri opnunarhátíð Bóka- og bíóhátíðar Hafnarfjarðar í Bæjarbíói þriðjudaginn 16. febrúar kl. 10:30. Í kringum 150 börn á aldrinum 4-7 ára verða viðstödd opnunarhátíðina auk annarra gesta.

Hvað er í boði?

Hér eru dæmi um það sem í boði er á menningarhátíð barnanna í Hafnarfirði:

  • Ljóð unga fólksins. Landskeppni 4.-10. bekkinga í ljóðaskrifum
  • SMS örsögukeppni. Þema keppninnar er „lestur“. 35 orða örsaga send í #6960035 fyrir 21. febrúar 
  • Útlánaleikur. Foreldrar barna á leik- og grunnskólaaldri fá afslátt af nýju bókasafnsskírteini
  • Semjum sögu saman. Saga skrifuð með þátttöku þinn á umbúðapappír á barnadeild bókasafnsins
  • Ekki dæma bókina eftir bíómyndinni. Bókaútstilling á bókum og bíómyndum gerðum eftir þeim
  • Sögustund eða safnkynningu – opið fyrir skólahópa leik- og grunnskóla

Nánari upplýsingar er að finna á vef Hafnarfjarðarbæjar.

Details

Start:
14. febrúar, 2016
End:
21. febrúar, 2016
Event Category:
Event Tags:
, , , ,

[ad name=“POSTS“]