
- This event has passed.
Barnamenningarhátíð í Reykjavík 19.-24. apríl
19. apríl, 2016 - 24. apríl, 2016
[ad name=“POSTS“]
Barnamenningarhátíð í Reykjavík verður haldin dagana 19. – 24. apríl næstkomandi.
Markmið hátíðarinnar er að efla menningarstarf barna og ungmenna í borginni. Hátíðin er vettvangur fyrir menningu barna, með börnum og fyrir börn. Hún fer fram í öllum hverfum borgarinnar og rúmar allar listgreinar og annað sem að börnum og menningu þeirra snýr.
Sérstök áhersla verður á fjölmenningu á Barnamenningarhátíð.
Á Barnamenningarhátíð hefur í gegnum tíðina verið boðið upp á fjölda viðburða víða um borg og bí, lista- og menningarsöfn verða opin og mun börnum og fjölskyldum þeirra verða borðið upp á ýmislegt skemmtilegt.
Nánari upplýsingar verður að finna þegar nær dregur á vefslóðinni Barnamenningarhátíð í Reykjavík.
Upplýsingar má líka finna á Facebook-síðu Barnamenningarhátíðar í Reykjavík.
[ad name=“POSTS“]