
- This event has passed.
Selfoss: Grýlupottahlaup haldið í 51. skipti
4. maí, 2019 - 10:00 - 11:30

Hvað:
Grýlupottahlaup Ungmennafélags Selfoss fagnar 50 ára afmæli í ár en fyrsta hlaup ársins 2019 var laugardaginn 6. apríl. Þetta er í 51. skiptið sem sprett er úr spori í Grýlupottahlaupinu.
Grýlupottahlaupið er 850 metra langt. Skráning hefst kl. 10:00 í Tíbrá, félagsheimili Umf. Selfoss, á íþróttavellinum. Hlaupið sjálft hefst kl. 11:00.
Í hlaupinu eru sex einstaklingar ræstir saman með hálfrar mínútu millibili. Þátttakendur eru á öllum aldri og er aðalatriðið að vera með.
Hlaupið fer fram sex laugardaga í röð. Fyrsta hlaupið var 6. apríl, síðan 13. apríl, 27. apríl, 4. maí, 11. maí og 18. maí. Ekki er hlaupið laugardaginn fyrir páska.
Keppt er í öllum aldursflokkum karla og kvenna. Að loknum sex hlaupum er tekinn saman besti árangur samanlagt úr fjórum hlaupum og veitt verðlaun. Keppt er í öllum aldursflokkum karla og kvenna.
Stefnt er á að hafa verðlaunaafhendingu laugardaginn 25. maí í Tíbrá klukkan 11.
Hvar: Selfossvöllur.
Kostar?
Ekki neitt.
Hvenær:
Laugardagur 4. maí á milli klukkan 10:00 – 11:30.
Ítarlegri upplýsingar: Grýlupottahlaupið á Selfossi
[ad name=”POSTS”]