
- This event has passed.
Þjóðminjasafn Íslands: Leynileikhúsið með leiðsögn um Þjóðminjasafn
1. desember, 2018 - 2. desember, 2018

Hvað: Hvernig sjá ung augu menningararf Íslands út frá völdum gripum fyrri alda á sýningum Þjóðminjasafnsins? Í hvaða áttir beina túlkendur á unglings- og barnsaldri hugsun gesta um siði og venjur áður fyrr?
Til að komast að þessu eru forvitnir gestir á öllum aldri velkomnir í leikna leiðsögn fjögurra ungra sviðslistanema hjá Leynileikhúsinu. Gestum boðið að ganga í gegnum grunnsýningu Þjóðminjasafns Íslands Þjóð verður til. Menning og samfélag í 1200 ár og hátíðarsýninguna Kirkjur Íslands í fylgd ungra, skapandi huga.
Hvar: Þjóðminjasafn Íslands.
Kostar? Ókeypis og öllum opin.
Hvenær: Laugardag og sunnudag (1. og 2. desember) klukkan 13:00 og aftur klukkan 15:00.
Ítarlegri upplýsingar: Leynileikhúsið í Þjóðminjasafninu
[ad name=“POSTS“]