
- This event has passed.
Skógardagur Norðurlands í Kjarnaskógi
9. júlí, 2016 - 13:00 - 16:00
Skógardagur Norðurlands verður haldinn í Kjarnaskógi laugardaginn 9. júlí frá klukkan 13-16.
Skógardagurinn fer fram á nýja grill- og leiksvæðinu sem kallast Birkivöllur og er sunnan við strandblakvellina og völundarhúsið í Skóginum.
Á dagskránni er fræðslu- og söguganga klukkan 13:30 og 14:30, ratleik, ánamaðkafræðsla, lummur, popp yfir eldi, varðeldur og fleira skemmtilegt. Á skógardeginum verða einnig komin upp steinsteypt borðtennisborð í Kjarnaskógi, sem er gjöf Malar og sands til skógarins og er væntanlega nýjung í skógi á Íslandi.
[ad name=“POSTS“]