
- This event has passed.
Borgarbókasafn: Hundar hlusta á bóklestur barna
20. mars, 2016 - 15:00 - 17:00

Borgarbókasafnið, í samstarfi við félagið Vigdísi – Vini gæludýra á Íslandi, býður börnum að heimsækja safnið og lesa sér til ánægju fyrir hunda sem eru sérstaklega þjálfaðir til að hlusta á börn lesa.
Boðið verður upp á lestrarstundina á 5. hæð Borgarbókasafns í Grófinni við Tryggvagötu í Reykjavík 6. mars og hefst hún klukkan 15.
Tveir hundar verða á staðnum og komast átta börn að í hvert skipti. Hvert barn fær að lesa fyrir hundinn í 15 mínútur. Hundarnir og eigendur þeirra hafa fengið sérstaka þjálfun til að sinna verkefninu. Foreldrar þurfa að bóka tíma fyrirfram fyrir börnin með því að hafa sambandi við verkefnastjóra
Gott að lesa fyrir dýr
Félagið Vigdís er aðili að lestrarverkefninu R.E.A.D – Reading Education Assistance Dogs sem starfar um allan heim með um 4 þúsund sjálfboðaliðum með það að markmiði að efla læsi barna með því að hvetja þau til yndislesturs. Lestrarstundir með hundi reynast börnum vel og ekki síst þeim sem eiga við lestrarörðugleika að stríða. Hundurinn gagnrýnir ekki barnið á meðan á lestrinum stendur, hjálpar því að slaka á og liggur rólegur á meðan lesið er. Sjálfboðaliðinn sem á hundinn ræðir síðan við barnið um innihald bókarinnar til að aðstoða og tryggja betri lesskilning.
[ad name=“POSTS“]