
- This event has passed.
Krakkamengi: Erna og Valdimar gestaleiðbeinendur
28. febrúar, 2016 - 10:30 - 12:00

Hjónin Erna Ómarsdóttir og Valdimar Jóhannsson eru gestaleiðbeinendur í sjöttu tilraunasmiðjunni Krakkamengi sunnudaginn 28. febrúar.
Krakkamengi er tilrauna- og tónlistarnámskeið Benedikts Hermanns Hermannssonar í Mengi við Óðinsgötu 2. Tónlistarnámskeiðið er ókeypis og opið öllum krökkum á milli 4-6 ára, líka fullorðnu fyldarfólki barnanna. Kennari og liðbeinendur gefa líka vinnu sína. Hafið í huga að aðeins um 50 krakkar komast á hvert námskeið og því er um að gera og hafa hraðar hendur. Gert er ráð fyrir fullri þátttöku fullorðinna í smiðjunni.
Þetta eru Erna og Valdimar
Þau Erna og Valdimar hafa lengi verið virkir þátttakendur í listasenunni. Erna er dansari en Valdimar tónlistarmaður og menntaður á því sviði. Þau hafa meðal annars verið listrænir stjórnendur listahátíðarinnar Reykjavík Dance Festival og ferðast um heiminn með börnin sín tvö undir merkjum listahópsins Shalala.
Fjöldi gestaleiðbeinenda hefur tekið þátt í tónlistarsmiðju Benna Hemm Hemm. Þar á meðal eru Dr. Gunni, hljómsveitin Eva, Víkingur Heiðar Ólafsson, Óskar Guðjónsson, Kira Kira, Futuregrapher, Magga Stína og fleiri.
Fyrirkomulagið
Börnin koma með foreldrum/forráðamönnum sínum í Mengi á sunnudagsmorgni klukkan 10:30 og vinna í vinnustofu í um klukkustund. Að því loknu fer fram flutningur á afrakstri vinnustofunnar.
Viltu vita meira um Krakkamengi í Mengi? Úllendúllen ræddi við Benedikt Hermann um Krakkamengi.
Nánari upplýsingar eru á Facebook-síðu sjöttu tónlistarsmiðju Krakkamengis.
[ad name=“POSTS“]