
- This event has passed.
Dr. Gunni og hljómsveitin Eva í Krakkamengi
21. febrúar, 2016 - 10:30 - 12:00

Tónlistargoðið Dr. Gunni og hljómsveitin Eva verða í hlutverki gestaleiðbeinenda í fimmtu tilraunasmiðjunni Krakkamengi sunnudaginn 21. febrúar.
Krakkamengi er tilrauna- og tónlistarnámskeið Benedikts Hermanns Hermannssonar í Mengi við Óðinsgötu 2. Tónlistarnámskeiðið er ókeypis og opið öllum krökkum á milli 4-6 ára, líka fyrir fullorðið fyldarfólk barnanna. Kennari og liðbeinendur gefa líka vinnu sína. Hafið í huga að aðeins um 50 krakkar komast á hvert námskeið og því er um að gera og hafa hraðar hendur. Gert er ráð fyrir fullri þátttöku fullorðinna í smiðjunni.
Fjöldi gestaleiðbeinenda hefur tekið þátt í tónlistarsmiðju Benna Hemm Hemm. Þar á meðal eru Víkingur Heiðar Ólafsson, Óskar Guðjónsson, Kira Kira, Futuregrapher, Magga Stína og fleiri.
Fyrirkomulagið: Börnin koma með foreldrum/forráðamönnum sínum í Mengi á sunnudagsmorgni klukkan 10:30 og vinna í vinnustofu í um klukkustund. Að því loknu fer fram flutningur á afrakstri vinnustofunnar.
Viltu vita meira um Krakkamengi í Mengi? Úllendúllen ræddi við Benedikt Hermann um Krakkamengi.
Nánari upplýsingar eru á Facebook-síðu fimmtu tónlistarsmiðju Krakkamengis.
[ad name=“POSTS“]